21.9.2007 | 10:02
Emilíana Torrini
Þá er maður kominn heim eftir ánægjulega vikudvöl í Noregi.
Ætla nú ekki að blogga þannig séð um ferðina, en það vakti athygli að þegar flugvélin mín milli Stavanger og Osló var lennt, að þá var kveikt á tónlist eins og hjá allflestum flugfélögum, og þá heyrði ég kunnulegt lag og kunnulega rödd, og var það engin önnur en Emilíana Torrini á fóninum í innanlandsflugi í Noregi. Þetta þykir kannski ekkert ófskaplega merkilegt, en í gærkvöld lá ég í sófanum, flakkandi milli sjónvarpsstöðva að leita að einhverju góðgæti, þegar ég stoppaði í nokkrar sekúndur yfir einhverjum amerískum þætti sem ég man ómögulega hver var, á skjá1 eða Sirkus, og þar heyrði ég Emilíönu hljóma líka.
hún er greinilega búin að koma ár sinni vel fyrir borð.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.